Reglur fyrir Söngkeppni Framhaldsskólanna 2010

Hver skóli getur sent frá sér eitt atriði í úrslitakeppninni. Í hverju atriði geta verið einn eða fleiri söngvarar, bakraddir, hljóðfæraleikarar eða dansarar. Öllum ber skylda að nota húsbandið nema um annað sé samið eða ef umrædd hljóðfæri eru ekki í húsbandinu. Undirspil skal vera algerlega án forsöngs.


Skráning í keppnina:

- Til að skrá skóla í keppnina þarf að senda tölvupóst á amevents@amevents.is fyrir 5.mars 2010(ATH virðið allar tímasetningar).
- Mikilvægt er að allar upplýsingar komi fram t.d. fullt nafn allra sem koma fram í atriðinu, heiti lags ofl. Skráning telst ekki vera gild nema allar upplýsingar skili sér í hús á tilsettum tíma – Allir formenn eru búnir að fá tölvupóst með öllum upplýsingum.


Lagið:
Öll login í keppninni skulu vera sungin á íslensku og má lengd lagsins ekki fara yfir 2:30 sek. Ef lagið er erlent þá þarf að þýða textann yfir á íslensku. Íslenskum texta þarf að skila fyrir 10 mars. 2010.
Ef skóli tilkynnir lag sem þegar hefur verið skráð til keppni skal hann finna annað lag því hvert lag verður aðeins sungið einu sinni. “Fyrstur kemur fyrstur fær”


- Allir keppendur taka þátt í eftirfarandi:
Hljóðver: Keppendur taka upp lagið með Bermúda
Ljósmyndatöku: Keppendur fara í myndatöku og eru þær notaðar í kynningar og markaðsefni
Kvikmyndaver: Keppendur taka þátt í kynningum, viðtölum ofl. sem notað er í  kynningar- og markaðsefni fyrir net og sjónvarp
Radd- og söngkennari: Söngþjálfari hjálpar keppendum við raddbeitingu
Framkomuþjálfari: keppendum er kennd sviðsframkoma og atriðið er “stíliserað” fyrir sjónvarp


Helstu dagsetningar:


5. mars   - Lagið komið í hús
6. mars   - Myndataka fyrir keppendur
7. mars   - myndataka fyrir keppendur
10.mars  - íslenskur texti tilbúinn
20.mars  - Keppenda workshop í Rvk
21.mars  - Keppenda workshop í Rvk
9. apríl    - Æfingar í Íþróttahöllinni á Akureyri
10.apríl   - Æfingar og keppnin sjálf í Íþróttahöllinni á Akureyri

 

 

 

 

Sækja bækling

Hljómsveitin Bermuda

Hljómsveitin Bermuda sér um undirleik fyrir keppendur í ár og um leið gera allt vitlaust á ballinu eftir keppnina. Bermuda var stofnuð haustið 2004 og hefur verið að gera það gott á ballmarkaðnum síðan en hún hefur spilað nær sleitulaust um land allt. Hljómsveitin hefur þó farið nýjar leiðir í lagavali þar sem hún hefur slengt fram nýjustu danssmellunum, sbr. Destiny's child, Justin Timberlake, Robbie Williams, Kylie Minogue, Jamiroquai ofl. Þó eru eldri stoðir til staðar, svo sem Earth wind and fire, Donna Summer, Stevie Wonder, Michael Jackson og fleiri.

 

Keppendur í ár

AM Events Facebook
©2009 AM Events // sími: 588 0101 // netfang: amevents@amevents.is