Reglur í Söngkeppni Framhaldsskólanna 2011
Hver skóli getur sent frá sér eitt atriði í úrslitakeppninni. Í hverju atriði geta verið einn eða fleiri söngvarar, bakraddir, hljóðfæraleikarar eða dansarar. Öllum ber skylda að nota húsbandið nema um annað sé samið eða ef umrædd hljóðfæri eru ekki í húsbandinu. Undirspil skal vera algerlega án forsöngs.
Skráning í keppnina:
- Til að skrá skóla í keppnina þarf að senda tölvupóst á amevents@amevents.is fyrir 20.febrúar 2011.
- Mikilvægt er að allar upplýsingar komi fram t.d. fullt nafn allra sem koma fram í atriðinu, heiti lags ofl. Skráning telst ekki vera gild nema allar upplýsingar skili sér í hús á tilsettum tíma.
– Allir formenn eru búnir að fá tölvupóst með öllum upplýsingum.
Lagið:
Öll login í keppninni skulu vera sungin á íslensku og má lengd lagsins ekki fara yfir 2:30 sek. Ef lagið er erlent þá þarf að þýða textann yfir á íslensku. Íslenskum texta þarf að skila fyrir 5. feb. 2011.
Ef skóli tilkynnir lag sem þegar hefur verið skráð til keppni skal hann finna annað lag því hvert lag verður aðeins sungið einu sinni. “Fyrstur kemur fyrstur fær”
Allir keppendur taka þátt í eftirfarandi:
Hljóðver: Keppendur taka upp lagið með Bermúda
Ljósmyndatöku: Keppendur fara í myndatöku og eru þær notaðar í kynningar og markaðsefni
Kvikmyndaver: Keppendur taka þátt í kynningum, viðtölum ofl. sem notað er í kynningar- og markaðsefni fyrir net og sjónvarp
Radd- og söngkennari: Söngþjálfari hjálpar keppendum við raddbeitingu
Framkomuþjálfari: keppendum er kennd sviðsframkoma og atriðið er “stíliserað” fyrir sjónvarp
Helstu dagsetningar:
5-6. mars - Workshop helgir
8. apríl : keppendur mæta í Höllina á Akureyri
9.apríl - Æfingar og keppnin sjálf í Íþróttahöllinni á Akureyri
Borgó
FNV
FSN
FSU
FS
FV
FB
FG
FÁ
Flensborg
FVÍ
Húsó
Laugar
Mosfellsbær
Hraðbraut
Iðnsk. í Hfj.
Kvennó
Borgarfjörður
MR
MA
ME
MÍ
Tröllaskagi
Laugavatn
MK
MH
MS
Tækniskólinn
VA
VMA
Verzló

