Keppnin
Söngkeppni Framhaldsskólanna 2011 verður haldin í 21. skipti í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardagskvöldið 9. apríl næstkomandi. Söngkeppni framhalsskólanna er fyrir löngu orðin þekkt sem einn stærsti tónlistarviðburður Íslands ár hvert. Þau 20 ár sem keppnin hefur farið fram hafa margir þekktustu tónlistamenn Íslands hafið feril sinn líkt og Páll Óskar, Emilíana Torrini ofl. Keppnin hefur alið af sér ógrynni skemmtilegra lagasmiða en sumir keppendur semja sín eigin lög og aðrir þýða erlend lög yfir á íslenska tungu. Sú regla að öll lög þurfi að vera á íslensku hefur gert það að verkum að margar skemmtilegar þýðingar hafa litið dagsins ljós og styrkt stöðu íslenskrar tungu í íslenskri tónlistarmenningu. Árið 2007 var það framleiðslufyrirtækið AM Events sem tók við keppninni fyrir hönd Sambands íslenskra framhaldsskólanema og hefur keppnin blómstrað eftir það. AM Events hefur stórbætt alla umgjörð utanum keppnina og sett hana á nýjan stall. Nú hittast keppendur mánuði fyrir keppni og fara í æfingabúðir þar sem þeim er leiðbeint í söng og framkomu af menntuðum þjálfurum og öll markaðssetning keppninar hefur tekið stakkaskiptum. Árið 2009 urðu miklar breytingar á keppninni en þá hætti RÚV við að sýna keppnina vegna niðurskurðar en keppnin hafði þá verið sýnd þar frá upphafi. Framhaldsskólanemar brugðust illir við og upphófst mikil barátta fyrir lífi Söngkeppninnar. Menntamálaráðherra var búinn að blanda sér í málið þegar AM Events fékk Stöð 2 til að bjarga keppninni og verður hún nú í 3. skipti í beinni á Stöð 2. Stöð 2 hefur komið til móts við AM Events og hjálpað þeim að byggja upp Söngkeppnina og framleiðir AM Events t.d. sjónvarpsþætti um undirbúning keppninar.
Samstarf SÍF og AM Events hefur gengið einstaklega vel og er ljóst að sá rammi sem AM Events hefur skapað er orðin órjúfanleg heild af þessari frábæru keppni. Nú fá keppendur ekki aðeins hjálp við að undirbúa sig fyrir söngkeppnina heldur hjálpa starfsmenn AM Events keppendum að nýta stökkpallinn sem þessi keppni er og hjálpa þeim að fóta sig í tónlistarbransanum.
Ekki missa af Söngkeppni Framhaldsskólanna 2011 í Íþróttahöllinni á Akureyri í beinni útsendingu á Stöð 2. Keppnin verður að sjálfsögðu í opinni dagsskrá fyrir þá sem ekki hafa Stöð 2 og ekki komast norður. Miðasala hefst hjá nemendafélögum 1. apríl og kostar aðgöngumiðinn aðeins 3.300 kr. og gildir hann einnig á risa dansleik sem er haldinn eftir keppni í Íþróttahöllinni.
Höllin opnar 18:30
Höllin lokar 19:20
Keppnin og bein útsending hefst 19:35
Sjáumst fyrir norðan 9. apríl!
Borgó
FNV
FSN
FSU
FS
FV
FB
FG
FÁ
Flensborg
FVÍ
Húsó
Laugar
Mosfellsbær
Hraðbraut
Iðnsk. í Hfj.
Kvennó
Borgarfjörður
MR
MA
ME
MÍ
Tröllaskagi
Laugavatn
MK
MH
MS
Tækniskólinn
VA
VMA
Verzló

