Fyrri Keppnir
Söngkeppni Framhaldsskólanna hefur frá upphafi verið gífurlega stór viðburður hjá þjóðinni. Margir okkar þekktustu listamönnum og söngsnillingum stigu sín fyrstu skref í keppninni í gegnum tíðina og mun sú þróun halda áfram án nokkurs vafa komandi ár. Fyrri ár hefur keppnin verið haldin annað hvert ár á Akureyri og annað hvert ár í Reykjavík, en í ár var hefðin brotin og ákveðið að halda keppnina á Akureyri annað árið í röð. Með því viljum við halda þeim stalli sem keppnin er á, þeirri bestu á Íslandi.
Það góða við Söngkeppni Framhaldsskólanna er að enginn einn skóli getur æft sig undir leiðsögn þjálfara allt árið um kring og unnið keppnina heldur koma hér hinir raunverulegu hæfileikar fram. Það kemur bersýnilega í ljós þegar litið er á úrslit keppninnar, í 18 ár hefur það aðeins tvisvar sinnum gerst að skóli verji titil sinn.



