Söngkeppni Framhaldsskólanna

  • Forsíða
    • Allt
    • Almennt
    • Viðtöl
    • Keppandi dagsins
  • Myndbönd
  • Miðasala
  • Keppnin
  • Keppendur

Lesa meira …

NoBorgó
NoFNV
NoFSN
NoFSU
NoFS
NoFV
NoFB
NoFG
NoFÁ
NoFlensborg
NoFVÍ
NoHúsó
NoLaugar
NoMosfellsbær
NoHraðbraut
NoIðnsk. í Hfj.
NoKvennó
NoBorgarfjörður
NoMR
NoMA
NoME
NoMÍ
NoTröllaskagi
NoLaugavatn
NoMK
NoMH
NoMS
NoTækniskólinn
NoVA
NoVMA
NoVerzló

Workshop helgi 5.-6. mars

23. mars 2011

Það var heldur betur húllum hæ þegar allir keppendur í Söngkeppni Framhaldsskólanna mættu til Reykjavíkur helgina 5. til 6. mars síðastliðinn. Keppendur mættu eldsnemma upp í Iðnó á laugardeginum og byrjuðu strax í masterclass hjá söngþjálfara Am Events, honum Seth Sharp. Seth sprellaði létt með keppendum og hitaði þá vel upp fyrir átök dagsins. Eftir það var hópnum skipt í 6 minni hópa og fór hver hópur á sitt hvora stöðina þar sem ýmis verkefni lágu fyrir keppendum. Á fyrstu stöðinni fengu keppendur að hitta hljómsveitina og styttu með þeim lagið og æfðu í stutta stund, því næst fóru keppendur í myndatöku hjá ljósmyndaranum okkar honum Erni. Ljósmyndirnar sem Ernir tók verða síðan notaðar í allt auglýsingaefni söngkeppninar svo sem plaköt, bæklinga og þessa stórskemmtilegu heimasíðu. Eftir myndatöku fóru keppendur til hans Sindra PR- og markaðssnillings AM Events, en Sindri leyddi þau í gegnum allan sannleikan varðandi samningamál, facebookið og hvernig þau gátu komið sjálfu sér á framfæri. Eftir facebook spjallið færðu keppendur sig upp á næstu hæð Iðnó og hittu þar aftur Seth Sharp, þar fóru þau í almenna framkomu og söngþjálfun og gekk mikið á. Eftir söngþjálfunina héldu krakkarnir í viðtal við nýja heimasíðu sem heitir felagslif.is en á bakvið hana eru ungir framhaldsskólanemendur sem fjalla einungis um félagslíf framhaldsskólanema. Síðasta stöðin var svo á þriðju hæð Iðnó (já Iðnó er á þremur hæðum) en þar fóru keppendur í svakalega skemmtilegt viðtal fyrir video klippur á netinu og í sjónvarpsþættina á Stöð 2.

Þegar keppendur höfðu lokið öllum stöðvum, sprellað aðeins með hvort öðru og fengið sér gómsætan Subway var haldið heim og búið sig undir átök sunnudagsins.

Eldsnemma á sunnudeginum mættu svo starfsmenn AM events upp í Nema Forum salinn og stilltu upp sviði og gerðu allt tilbúið fyrir upptökur og æfingar. Keppendur komu svo í hópum niður í Nema Forum og æfðu með hljómsveit og tóku upp demó af lögunum sínum. Meðan sumir tóku upp fóru aðrir í skemmtilega leiki meðal annars í ratleik sem átti sér stað inní Kolaportinu. Keppendur fóru svo allir saman í hádegismat á Hamborgarafabrikkuna og tóku lagið. Eftir hádegi fóru keppendur í viðtal við Monitor Tv og upptökur héldu áfram. Keppendur voru svakalega mis undirbúnir og drógust upptökur til miðnættis en keppendur tóku því með jafnaðargeði og var góð stemning allan daginn.

Með þessu vill AM Events stuðla að því að keppendur séu betur undirbúnir fyrir keppnina sjálfa og fá líka aðeins að kynnast sín á milli. AM Events vill þakka öllum sem tóku þátt í gleðinni með okkur!

Sjáumst á Akureyri 9. april

Almennt

 

 

AM Events   amevents@amevents.is   Hafnarstræti 15   101 Reykjavík, Ísland   588 01 01 Twitter Facebook