Kristmundur Axel og Júlí Heiðar mæta aftur á sviðið
23. mars 2011
Sigurvegararnir árið 2010 frá Borgarholtsskóla þeir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar slógu heldur betur í gegn út um allt land eftir sigur þeirra í Söngkeppninni 2010. Kristmundur og Júlí ætla að mæta og flytja sigurlagið frá því í fyrra í Íþróttahöllinni á Akureyri 9. apríl næstkomandi. Eins og áður hefur komið fram er keppnin í beinni útsendingu á Stöð 2 í opinni dagskrá.
Kristmundur og Júlí Heiðar kíkja líka á risa dansleikinn sem haldin
er eftir keppni og aldrei að vita nema þeir taki eitthvað af sínu nýja efni þar. En bæði Kristmundur og Júlí hafa verið duglegir að koma fram og semja nýtt efni. Báðir hafa þeir fengið gríðarlega mikla spilun á FM957 og öðrum stöðvum auk þess sem sigurlagið frá því í fyrra var ofarlega á mörgum árslistum, meðal annars netlista Tónlist.is fyrir árið 2010.
AM Events býður sigurvegara söngkeppninar 2010 velkomna aftur!
Almennt
Borgó
FNV
FSN
FSU
FS
FV
FB
FG
FÁ
Flensborg
FVÍ
Húsó
Laugar
Mosfellsbær
Hraðbraut
Iðnsk. í Hfj.
Kvennó
Borgarfjörður
MR
MA
ME
MÍ
Tröllaskagi
Laugavatn
MK
MH
MS
Tækniskólinn
VA
VMA
Verzló

