Miðasala- Fer MJÖG hratt af stað : 
miðasala í höllinni á Akureyri um 
helgina

17. apríl 2009

Kæru vinir, Miðasalan fer kjánalega hratt af stað, en því miður eru einhverjir skólar sem ekki hafa sett af stað miðasölu. Eitthvað virðast armböndin okkar verða til vandræða þar sem þau byrjuðu nú á að fara til Ísrael, í stað Íslands. Af þeim sökum, verðum við með eitthvað af armböndum til sölu í höllinni á akureyri bæði föstudag og laugardag, milli 15:00 til 17:00 eða þangað til uppselt er. Hlakka til að sjá ykkur öll :)

Ultra Mega Teknó Bandið Stefán bætist 
við...

14. apríl 2009

UMTBS er rafræn skynörvandi hljómsveit sem að skaust upp á sjónarsviðið árið 2006 eftir að hafa slegið í gegn á Músiktilraunum og á Iceland Airwaves. Í framhaldi spilaði hljómsveitin um allan heim með hljómsveitum á borð við Daft Punk, Chemical Brothers, Manic Street Peaches og sló í gegn í netheiminum með frumburði sínum ,,Circus'' en hún ásamt myndbandi við lag þeirra ,,3D Love'' trónaði á forsíðu Myspace í um mánuð. Um þessar mundir er hljómsveitin að semja nýtt efni og fylgir frumburðinum í spilamennsku.

AM Events Facebook
©2009 AM Events // sími: 588 0101 // netfang: amevents@amevents.is