Bakvið tjöldin á Söngkeppni Framhaldsskólanna
Það er viðburðarfyrirtækið Am Events sem hefur skipulagt keppnina síðustu þrjú árin í samstarfi við HÍF og SÍF. Ásamt Am Events starfa framsæknir aðilar úr öllum áttum til að gera keppnina sem glæsilegasta. Þar má nefna ljósmyndara, hönnuði og önnur eins mikilvæg hlutverk. Á þessari síðu er gestum boðið upp á að fræðast örlítið um aðilana bakvið keppnina og jafnvel líta aðeins á undirbúning keppninar. Til gamans má geta að Verkmenntarskóli Austurlands hefur séð um Hár og förðun undanfarin ár.










